SKILMÁLAR 

Upplýsingar um fyrirtækið/söluaðilan 

Hobbý Húsið ehf, Gvendargeisla  58, sími: 6936931, email: info@alienmagic.is. Hobbý Húsið ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. 

Afhending vöru 

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Kerfið á að tryggja að ekki sé  hægt að panta vöru sem ekki er til á lager, verði hins vegar mistök og varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Hobbý Húsið ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Hobbý Húsinu til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.  

Verð á vöru og sendingakostnaður 

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum eða á næsta pósthús á kostnað kaupanda. Ef að verslað er fyrir 10.000,- eða meira sendum við frítt á næsta pósthús  eða heim að dyrum.  

Að skipta og skila vöru 

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Hægt er, undir ákveðnum kringumstæðum, að taka kóðann gildan í verslun Hobbý hússins. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.  

Gölluð vara 

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðin og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist í formi inneignarnótu. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup. 
 
Trúnaður (Öryggiskilmálar) 

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party. 

Lög og varnarþing 

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.  Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law. 

 Hobbý húsið ehf. © 2024 Allur réttur áskilinn. - Skilmálar
Vefur smíðaður af Tölvuaðstoð ehf.